Í brennidepli
4.6.2024 : Alvarleg brot Samskipa á samkeppnislögum
24.8.2022 : Upplýsingasíða - Stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar á störfum Samkeppniseftirlitsins
3.11.2021 : Leiðbeiningarsíða - Hagsmunasamtök fyrirtækja og samkeppnisreglur
Fréttir
13.11.2025 : Tilmæli um að starfsumhverfi einkarekinna og opinberra heilsugæslustöðva verði jafnað ítrekuð á ný - Mikilvægt að gripið verði til aðgerða
Í október 2017 beindi Samkeppniseftirlitið tilmælum til heilbrigðisráðuneytisins um að jafna starfsumhverfi einkarekinna og opinberra heilsugæslustöðva. Tilefni tilmælanna voru athugasemdir sem höfðu borist frá einkareknum heilsugæslustöðvum um samkeppnislega mismunun. Í bréfinu var jafnframt fjallað um þær breytingar sem höfðu orðið á heilsugæslukerfinu á höfuðborgarsvæðinu og mikilvægi þess að notendur heilsugæslustöðva geti flutt sig á milli heilsugæslustöðva óháð rekstrarformi þeirra og þannig skapað hvata fyrir stöðvarnar til að bæta þjónustu, skilvirkni og hagkvæmni í kerfinu.
3.11.2025 : Upptaka af fundi um stefnumörkun í samkeppnismálum – Samkeppniseftirlitið 20 ára
Í tilefni af 20 ára afmæli Samkeppnieftirlitsins bauð stofnunin til opins fundar í Hörpu 22. október 2025 undir yfirskriftinni: Mikilvægi samkeppninnar - Hvað getum við lært af reynslunni og hvert skal stefna? Um 130 þátttakendur mættu í Hörpu auk þess sem viðburðinum var streymt beint hjá Heimildinni og mbl.is.
23.10.2025 : Í tilefni af fyrirspurnum fjölmiðla
Embætti héraðssaksóknara framkvæmdi í dag húsleitir og aðrar aðgerðir til þess að afla gagna og upplýsinga vegna ætlaðra brota tveggja fyrirtækja á markaði fyrir úrgangsþjónustu á samkeppnislögum. Rannsóknin beinist að ætluðum brotum starfsmanna fyrirtækjanna og grundvallast á kæru Samkeppniseftirlitsins.
Pistlar
Virk samkeppni er fyrirhafnarinnar virði - Hlutverk eftirlits með samkeppni á raforkumarkaði
Þann 23. maí 2025 tók Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, þátt í málstofu á Samorkuþingi á Akureyri. Málstofan bar yfirskriftina „Hlutverk eftirlits með samkeppni á raforkumarkaði". Einnig tóku þátt Árni Páll Árnason, varaforseti Eftirlitsstofnunar EFTA, og Hanna Björg Konráðsdóttir, deildarstjóri raforkueftirlits Orkustofnunar. Katrín Helga Hallgrímsdóttir, lögfræðingur Samorku, stýrði fundi.
Við verðum að gera betur - Skilar samkeppni okkur samkeppnishæfu matarverði?
Pistill þessi byggir á innleggi Páls Gunnars Pálssonar, forstjóra Samkeppniseftirlitsins, á opnum fundi Félags atvinnurekenda um samkeppni og matarverð, sem haldinn var 27. febrúar 2025.